Drífa
Myndir
29.02.2008 18:58:29 / tordfro

Þá er bara að byrja...

Loksins komin aftur til Debrecen, samt i 3 skipti síðan ég bloggaði síðast..

Ok ég lenti 28 jan og var komin til debó um hálf 2.. var ekkert að hafa fyrir því mikið að fara að sofa því ég var hvort eð er að fara í próf eftir 6 klukku tíma svo ég hélt bara áfram að lesa internal og rölti svo frekar róleg upp á spítala.. 4 tímum síðar var þetta allt búið og sátt með árángurinn..

Þá var ekki annað hægt en að reyna að svala þorstanum fyrir sól og hita sem ég er búin að vera að kvarta undan síðustu vikur svo ég skellti mér upp á ferðaskrifstofu og var svona líka heppin að næla mér í "hopp" til Kanarí á svaka fínu prísi með öllu inniföldu,( matur og drykkur í viku) ekki kannski það besta ef maður er e-h að reynað passa línurnar.. Var rosalega heppin með veður allan tíman, glampandi sól og hiti södd og sæl í viku.. heheh ( pabbi minn það er sko ekkert hjól á Kanarí;)
 
4. feb var ég svo aftur komin til Debrecen tilbúin að takast á við skólan.. það var þó stutt stopp.. því að Gunna, stína og Bjartur voru komin með þá flugu í hausin að það væri must að fara til Vínarborgar í Austurríki um helgina og voru svo góð að plana ferðalagið heima á simonyi... aha þarna sit ég í stofunni og reyni að freistast ekki þegar þau ræða þetta en þegar kom að því að panta hótel.. þá gat ég ekki meir og hrópaði að ég yrði að fá að koma með... næsta dag voru 4 í enn búnir að bætast í hópinn... Kári, Andri Ófeigur og Doddi...

Á föstudeginum leggjum við af stað um 7 leitið um kvöldið, fyrsta stopp var að ná í stínu sem var í prófi, svo það kom á okkar hlut að muna eftir farangrinum hennar heima, en þar sem við erum bara læknanemar með mjög takmarkaða getur til að nota kollana okkar fullkomnlega þá datt okkur ekki einusinni í hug að stína væri kannski með aðeins meira dót en bara lítin bakpoka... 80 km frá búda áttar Stína sig á heimsku okkar, og öðrum bílnum var snúið við til debó aftur...
Ég var samt svo heppin að vera dregin í bíl með sætu fyrsta árs strákunum og við héldum bara áfram til búdapest og skelltum okkur út að borða á Tom George, sem var svona líka flottur staður.. og vorum orðin frekar hress þegar krakkarnir komu. Þá var ekki annað hægt en að skella sér á lífið..
Daginn eftir, drullu þunn ( samt fallega þunn, Gunna;) um 10 leitið var svo lagt í ann... West end og Burger King bjargaði þynnkunni gjörsamlega... Og stutt stopp á hæ veginum svona bara til að taka myndir.. ( allt stopp í hálftíma þar, örugglega út af einhverju slysi) komust við loksins af stað til Vínar...

Um 5 leitið lentum við í miðborg Vínar og tókst að sjálfsögðu að villast þar... eftir nokkra hringi var ákveðið að annar bíllinn færi á hostelið og hinn næði í miðana í óperuna... kl 20 mín í 7 er hinn hópurinn ekki enn komin og við orðin frekar stressuð en sjóvið átti að byrja 7.. en við ákvaðum að taka bara taxa niðureftir og hittast öll þar... Vitandi það ( úr bíómyndunum) að maður má ekki fara inn eftir að sýning byrjar stóðum við fyrir utan hostelið og biðum eftir taxanu... ég, Gunna, Bjartur og Andri sem hafði skemmt sér aðeins og vel í bílnum á leiðinni til Vinar borgar með vini sínum Jack daniel.. Loks kemur taxin en mér til furðu kemur rauðhærð stelpa hlaupandi í áttina til mín, æpandi... PLEASE LET ME HAVE THE TAXI PLEASE!!! Og ég farin að taka þessu stressi frekar illa, einhverja hluta vegna hrópa ” NOOOO WE ARE MISSING THE OPERA!!!! ... en nei haldiði ekki að stelpan fari bara að hágráta beint fyrir framan mig og kærstinn hennar kemur og tekur utan um hana og gefur mér þvílíkt illt auga... jæja við setjumst samt uppí bíl og alla leiðina gat ég ekki hætt að hugsa um þetta, mín viðbrögð, viðbrögð stelpunar og hvað hefði getað verið svona svakalega mikilvægt... kannski var hún að missa að e-h miklu mikilvægara en ég og ég bara æpti á hana??? Úff ég var líka búin að sannfæra sjálfa mig um að þetta myndi skila sér í ”bad Karma” fyrir mig.... En neinei... þegar við stígum út ur leigubílnum fyrir utan óperuna, haldiði ekki að ég sjá rauðhausin hlaupa úr öðrum leigubíl inn í óperuna þvílíkt heppí peppí??? En nú kom að okkur að drífa okkur inn og á harða spretti upp allar tröppurnar, stutt stopp með jakkana og svo beint í sætin, kl 19:00 og ljósin slokkna... og það er eitt laust sæti af þeim átta sem við pöntuðum... allir líta í kringum sig og það rennur upp fyrir okkur að Andri IS MISSING!!!  ( eins og móment klippt út úr home alone) Hendist ég niður og beint út og enginn Andri.. hann og Jack daniels eru horfnir og ekki að finna í neinni nálægri götu eða á neinni hæð á ráfi í Óperunni... Andri er týndur, óperan er byrjuð og ég stend frami byrjuð að skipuleggja lögregluleit í vín...KARMA!!! Fer aftur inn í sal eftir fyrsta hlé og sit ein meðal einhvers fólks sem hafði komið of seint... og tárin byrja að streima niður kinnarnar á mér (svona frekar darmatísk ég veit) og fólkið hliðina á mér kínkar stöðugt kolli til mín, heldur að ég sé að grenja út af óperunni!!! En nei nei haldiði ekki að 20 mín seinna ráfi strákurinn ekki bara inn hinum megin í salinn, setjist niður og steinsofni... gleði gleði Andri var fundinn..Ég held reyndar að flestum okkar hafi tekist að sofnast í lokin þar sem 3 og hálfur tími af ” fallegu væli” var bara of mikið fyrir flest okkar..

Sunnudagurinn fór svo í að skoða borgina og nokkur söfn.. æðisleg borg og alveg rosalega falleg...

Mánudagur 3. stopp í Debrecen og er hér enn.. Allt komið á fullt og alveg nóg að gera.. Vona að allir hafi það rosa gott og ef þið viljið myndir þá er e-h slatti inni á heimasíðunni hennar stínu..

Kv. Drífulingur 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 10:35:08 / tordfro

Land þjónustu og velsæmdar

Mamma geturu eldað fyrir mig, pabbi geturu borið þetta fyrir mig, Halli nennuru að redda ÖLLU og krissa geturu nuddað mig.. já svona á lífið að vera, allir til í að gera allt fyrir þig, nema kannski krissa sem er pínu þrjósk og neitar að nudda mig... hummm.

Já heima er alltaf best

Vaknaði í morgun alveg viss um að það væri mið nótt, frekar pirruð að vera vöknuð þar til ég áttaði mig á því að klukkan var orðin 10 og mundi þá að það er alltaf dimmt hérna... Ljúft.... Búin að leggja mig alla fram við að hafa áhyggur af e-h, þar sem ég virðist lifa á stressi en get ómögulega fundið neitt, nema kannski að ég kom bara með óhein föt með mér svo ég þarf að bíða í allan dag eftir að allt þorni eftir þvottinn svo ég neita að fara út. Það er kannski alls ekkert svo slæmt að hanga heima í allan dag og glápa á kassan og slappa af...

Annars er ekkert plan næsta mánuðinn nema hanga, slappa af og djamma pínu... úff ég á eftir að klikkast..;)

Kv. Drífulingur


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 12:40:54 / tordfro

Dagurinn sem Drífa næstum dó...

Ég vaknaði um 4 í morgun með þvílíkan stress kökk í hálsinum, maganum, og frosin á fótunum, og puttunum. Próf dagurinn mikli og ég að frjósa því ég kann ekki á gasið og gat ekki að kveikt á því... svo ég lá uppí rúmi í ulpunni minni með húfu og vettlinga og notaði hitan frá tölvunni minni til að krókna ekki... ohh þetta er svo erfitt líf... jæja eftir smá glugg í bók, svona þetta allra síðasta, þá fór eg á fætur og skellti mér í prófa fötin og gerði mig til. Svona frekar lítil í mér gekk ég niður stigan heima og var næstum dottin.. úff munaði sko engu að ég rúllaði niður, byrjaði vel... En nei nei, þegar ég svo kem út þá sveima krákurnar um í þúsunda tali og að sjálfsögðu tekst einni að skíta á mig!!$!"" ertu ekki að grínast, það var bara eins og ég ætti ekki að fara í þetta próf.. en ég lét ekki stoppa mig og komst á leiðarenda. Þá tók við 5 tíma törn af pathó sem virtist engan enda ætla að taka... en það hafðist og ég loks kláraði þetta blessaða próf... lífið er gott í dag:)

Já ég læt EKKERT stoppa mig, það má skíta á mig bregða fyrir mig fæti og kasta mér niður stiga en það skiptir ekki því....ÉG ER AÐ KOMA HEIM:)

Heimferð á morgun og lendi degi fyrr en áætlað var, kl 22:20

KV. Drífulingur:)´

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 20:20:36 / tordfro

51 milljón og ég fæ ekkert???

Núna er ég búin að vera sómasamlegur þátttakandi í Lottó í 3 ár og hef ekki sleppt einu sinnu (er í áskrift;) jæja ég hef svona haft það á tilfinningunni upp á síðkastið að nú hljóti bara að koma að mér að fara að vinna e-h... svo sá ég að það voru 51 milljón í vinning næsta laugardag og ég var svona líka alveg viss að nú væri minn tími komin, svo ég hringi í Ásgeir vin minn og segji honum frá þessu og að ég ætli sko að bjóða honum og stelpunum út að borða voða grand á laugardaginn eftir að ég er búin að vinna, all on me:) Jæja kemur laugardagur og ég sit spennt fyrir framan tölvuna og horfi á lottó.. 1.. ohh... 28... ohhh... 38... ohhhh og ég hætti að horfa... ekki neitt! ekki ein einasta tala rétt! Hvað er málið??? ég ætla nú samt að kenna fjölskyldunni um þar sem ég nota afmælisdaganna þeirra... svo skamm fjölskylda! En nei nei svo hringi ég í Ásgeir og þá hafði litli púkinn farið og keypt sér lotto og unnið! Djö! ég = 3 ár.. ásgeir = 1. sinni??? hvað er það... honum að sjálfsögðu fannst þetta ofur fyndið og var ekkert að spara það! hummm... mér til varnar þá vann hann bara 440 kr en eyddi 1000 kalli í miðan... það eru 660 kr í tap Ásgeir minn... 660 kall!!!

Kv Drífulingur... á pínu bömmer yfir immunó....

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 10:56:08 / tordfro

Súkkulaði át og skemmdar tennur!

Jæja ég kom heim í dag úr skólanum og á rúminu mínu liggur risastórt súkkulaði dagatal! Ha! Eg geri ekki annað en að græða held ég meðan ég bý hérna! Já hún stína fína hafði splæst á okkur jóladagatal og enn og aftur- súkkulaði jóladagatal! þetta er fyrsta súkkulaði dagatalið mitt ever, sem minnir mig á gömludagana þegar maður vældi í pabba um að fá solleiðis en að sjálfsögðu kom það engan veginn til greina, því fyrir honum var það gjörsamlega út í hött að fá sér súkkulaði á morgnanna og svo skemmdi það líka tennurnar! og það þýddi sko ekkert að benda á tannkremið sem fylgdi með. Ég man líka eftir að hafað hugsað að þegar ég yrði sko stór þá myndi ég alltaf fá mér súkkulaði dagatal... svo við getum vist litið á þetta sem það fyrsta af mörgum!:)

En nú er bara spurning hvort maður fer að fá í skóinn líka (vínk vínk stína;) Ég man eftir því þegar ég var lítil þá held ég að pabbi hafi ekkert verið of spenntur fyrir því að vakna eldsnemma á morgnanna til að troða e-h drasli í skóinn minn, þannig það var all oft sem ég vaknaði með ekkert í skónum og pabbi þurfti að bjarga sér fyrir horn og segja að jólasveininum hefði seinkað og ég yrði bara að loka augunum í nokkrar mín. í enn.. svo þegar ég opnaði augun var yfirleitt mandarína í skónum ( sem ég er með ofnæmi fyrir) eða pipakökur sem ég hafði skerytt sjálf??? Nú sé ég mömmu fyrir mér fúla að ég geti ekki munað eftir því þegar ég var 2 og fékk allar fínu gjafirnar í skóinn... ég held að þetta sér bara allt krissu að kenna... eftir að hún fæddist þá virtust gjafirnar verða lélegri og léglegri með hverju árinu, þar til ég gafst upp og sagði pabba að ég vissi að jólasveinninn væri ekki til og litlu systur minni í leiðinni bara svo hún fengi ekki áfram í skóinn;) hihihi sorry sys...

Annars er bara rigning og drulla úti og ekkert of gaman, sit bara heim og er að fara yfir fyrirlestra fyrir immunó próf á morgun... 7 9 13 uppá undanþágu!

kv. Drífulingur


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 15:53:32 / tordfro

hihihi hún er svo mikið yndi...

... hún stína

Núna þegar það fer að nálgast jólinn þá minnir það mig alltaf sí meir á að ég verð ein hérna og það á ekkert eftir að vera of gaman. Ég var búin að vera að ræða þetta við stelpurnar, að þar sem að þær væru að fara heim þá mættu þær ekki vera að troða því í andlitið á mér alla daga, með jólalögum, skreytingum og e-h úber jólaskapi... Það væri bara jólaskaði. en ég sagði samt að það kæmi kannski til grein að skreyta pínu, en ekki fyrr en í desember! hhihih

Jæja 1. Des í dag og ég var að ganga heim úr skólanum og sé að það eru komin e-h aukaljós í gluggan hjá okkur á "fimmtu" hæð á simonyi 29.. Og ég verð að viðurkenna að mér hlýnaði alveg pínu í hjartanu og leyst bara alls ekkert of illa á þetta... en ég vissi samt líka alveg hver stæði fyrir þessu.. heheh en nei nei... þegar ég svo geng inn þá heyri ég þvílík fótatök, og fann lykt af angist... og hummm enginn jólaljós... hihihihi þá hafði stínu brugðið svo að ég væri að koma að hún flýtti sér að taka allt niður svo ég sæi það ekki... en Drífan var of klók og greip hana glóðvolga.... hihih þá var planið víst að hafa allt uppi meðan ég væri ekki heima og taka það svo niður áður en ég sæi.. hihihi þetta er of fyndið... hvað er ég Grinch???

En ég verð að segja að mér líst bara ágætlega á þetta og nú er allt komið aftur upp og meira að segja jólalög óma um íbúðina!

Þannig að fyrir alla sem eiga von á jólum... Gleðileg Jól!

 Kv. Drífulingur:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 15:27:47 / tordfro

Hvar annarstaðar en....

...Í ungverjalandi:

-Er besta djammið í miðri viku

-Safnast saman þúsundir kráka fyrir framan gluggan þinn kl 6:30 á morgnanna og skíta svo mikið að það þarf regnhlíf til að vera ekki dritaður niður, það er ef svo vill til, að maður er komun út svo snemma..

-Sér maður fjólubláan G-streng út á miðri götu og lætur það ekkert koma sér á óvart

-Kemuru heim á thanksgiving og Stína er búin að baka applepie

-Sérðu sækó kallinn(sem drap konuna sína fyrir 15 árum) úr sæk tímanum þínum koma hlaupandi á móti þér út á götu með groserípokann á leiðinni heim

-Er 15 stiga frost og svo 15 stiga hiti daginn eftir

-Er kalt og blautt úti en samt enginn rigning??

-Er kósí á kvöldin að læra fyrir próf og alls ekkert of fúlt.

-Lokar heliker kl 5 mín í 7 bara af því að fólkið nennir ekki að vinna lengur, og ætlar sko að vera komið heim kl 7

 Já ég held að þetta sé bara ágætis place sem ég er búin að finna mér í bili 

Kv. Drífulingur


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 15:43:39 / tordfro

Gleði gleði og prófalestur

Já það er búið að vera kátt í koti á Simony 29. Við stelpurnar erum alveg að deyja við erum svo ánægðar með hvor aðra að því fær varla orðum líst. Við gerum lítið annað en að hrósa hver annarri, knúsa, kyssa og kúra svo e-h væri nefnt;) hehehe eða e-h... en nei svona í alvörunni, lífið er gott. Ég er mest upp á síðkastið búin að vera heima og læra fyrir oncologiu og clinical biochem sem ég er að fara í á morgun og það er búið að ganga bara hreint ágætlega... stefnan er sett á fimmu og allt fyrir neðan það er glatað;) heheh ok kannski er fjarki ágætur líka;)

Fyrir ykkur mamma og pabbi þér er hérna slóðin á myndasíðuna hennar stínu: http://imageevent.com/stinajona  þar sem ég er ekki nógu dugleg að taka myndir, og hér getiði séð hvað er raunverulega í gangi í Debó, er ég kannski að koma upp um mig soldið;)

 Krákurnar eru komnar til Debrecen og fljúga um allt í þúsunda tali eins og gammar yfir bænum, en þetta þýðir víst að veturinn er kominn enda er orðið frekar kalt hérna og stóra úlpan hefur verið tekin fram og vettlingarnir. 9 vika er hálfnuð svo það eru ekki nema 5 vikur eftir að skólanum. Helst á dagskrá er Immunólogia á fimmtudag eftir viku, micro eftir það og svo annað clinical biochem próf... í rauninni bara próf þar til ég byrja í jólaprófum!! vei!! Sweet life of third year:)

 Vona að allir hafi það gott heima!!

Kveðja Drífulingur


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 20:04:19 / tordfro

Tileinkað Stínu og Gunnu

Já frekar langt síðan að ég bloggaði... voða lítið líka búið að gerast... helst bara að læra og skralla soldið til að gefa lífinu lit.. annars ákvað ég þar sem draumur minn hefur alltaf verið að verða ljóskáld að semja ljóð til herbergisfélaganna minna bara af því að þær eru svo æðislegar

Þær simonyi stúlkur

Eru ágætis dúkkur

Með þeim er frábært að vera

Enda sjúkar í að kela 

Þær Gunna og Stína

Eru ekki frá kína

En að búa með þeim er skást

Því hjá okkur er endalaus ást

 

Bara fyrir ykkur... þið eruð æðislegar:D

Kv. Drífulingur


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 15:56:01 / tordfro

Jæja...

... fór í fótbolta í gær með stelpunum... frekar gaman nema að íþróttamanneskan mikla tók upp gömulmeiðsl í náranum, (síðan á föstudaginn) og var off sennipartinn af leiknum vegna stingandi verkja í klofinu... of kúl. Ér annars bara búinað sitja heim í dag og þykjast vera að læra minnimála í micro fyrir framan sjónvarpið. Gekk reyndar alveg ágætlega þar sem mér tókst að setja eina leiðinlegustu mynd sem ég hef séð í tækið, the hours svo ég bara varð að lesa til að drepast ekki úr leiðindum.. sko alltaf að græða! Annars er voða lítið að gerast hjá minni... bara að læra undir próf í pathó autopsy sem verður 18 okt.. sama dag og mamman og pabbinn koma... sem ég er farin að hlakka alveg rosalega til...

Kv. Drífulingur


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 11:19:26 / tordfro

Voða..

....lítið búið að vera í gangi í ungó... bara að læra og læra og sofa og sofa og vakna snemma á morgnanna í bootcamp... sem amazingly ég er enn þá að stunda... who would have tought. Annars erum við gunna á simonyi 29 komnar með nýjan meðleigjanda.. Hún heitir Stína og er bara alveg ágætis stelpa... enda kom ekki annað til greina... við gunna héldum viðtöl og tókum á móti um 78 umsóknum um að fá að búa hjá okkur en að sjálfsögðu voru allir metnir að verðleikum og Stína stóð uppi sem sigurvegari með flest stig í pottinum;) ( og mamma bara fyrir þig... djók) Er annars búin að koma mér vel fyrir og líður rosa vel hérna. Sakna ykkar heima náttla allra rosalega mikið but what can you do but make the best of it og það gengur svona líka vel.

Það er rosa gaman í skólanum og fögin sem ég er að taka eru án efa mjög athyglisverð og loksins er maður farin að fá góðan nasaþef af því hvernig það verður að vera læknir.. líst bara vel á. Ég er líka loksins farinn að anda með nefinu en ekki munninum í patho... sem var frekar stórt skref fyrir mig, og ekkert wicks! svona er maður mikil hetja... heheh eða eithhvað:) Annars vona ég bara að þið mamma og pabbi hafið það gott á tenerife, þú brósi Halli sért að standa þig vel í vinnunni og líðir vel... og já litla krílið Kriss passaðu þig á strákunum! ég get rétt ímyndað mér að þeir séu að missa sig í kringum þig vitandi að þú ert á lausu!!!

Kv. Drífulingur


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 13:24:30 / tordfro

PAIN!!

Úff eg er gjörsamlega að farast í öllum skrokknum... ég er með svo miklar harðsperrur og ekki bara í fótunum eða handleggjunum heldur bara allstaðar... rasskinnunum, hálsinum, bakinu,, hliðunum...puttunum...allstaðar!!! ég er búin að festa mig nokkrum sinnum í dag bara við það eitt að reyna að komast úr peysunni eða að reyna að standa upp... úff svo má ekki gleyma þessum blessuðu stigum heima hjá mér... en ég bý á efstu hæð í blokk... sem að sjálfsögðu í ungverjalandi er köllum 3ja hæð en ef við værum á íslandi þá myndi þetta aðsjálfsögðu vera 5 hæð þar sem það eru 4 íbúðir fyrir neðan mig...og það tók mig um 10 min í morgun bara að komast nidur... og um 14 min rétt áðan að komast upp aftur!!! hjálp!!

kv. Drífulingur


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 06:40:43 / tordfro

Hress og kát í Debrecen

Ég vaknaði kl 6:10 í morgun og skellti mér út í bootcamp. Einn strákur hérna á 6 ári leiðir hópinn og við tókum öll frekar vel á... alla vegana ég er gjörsamlega búin í fótum og höndum eftir átökinn. Ég ætla að reyna að halda mig við þetta og mæta 3 í viku til að halda mér í smá formi... Annars er lítið að frétta af mér, helgin fór bara í léttan lestur í clinical biochemistry og pathó autopsy og svolítið sjónvarpsgláp... Svo komu líka nokkrir krakkar til okkar gunnu á laugardaginn og við spiluðum Trivial pursuit sem ég og ævar gjösamlega skíttöpuðum sem team... but who cares anyway!:lol:

Ekkert frekar merkilegt að frétta héðan..

kv. Drífulingur 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 13:04:03 / tordfro

hversdagsleikinn...

Jæja þá er ég byrjuð í skólanum og það er bara fínt. Eyrún og Eva voru hérna hjá mér í viku og það var ótrúlega gaman hjá okkur... fórum til Búdapest í verslunarleiðangur, djömmuðum fullt í debrecen og skemmtum okkur rosa vel saman. Núna samt er hversdagsleikinn tekinn við og ég bara komin á fullt. Er byrjuð í pathologiu og fór í fyrsta tímann í gær morgun. Var alveg að deyja úr spenningi og það mætti alveg væntingum. Fengum konu sem hafði dáið kvöldið áður úr lungnakrappa og fengum að sjá allt skorið upp og krufið... frekar merkilegt.. þó að eg verði að viðurkenna að lyktinn var aðeins verri en ég hélt svo ég andaði með munninum allan tíman og þegar ég var loksins búin þá bragðaðist allt eins og pathólógía allan daginn sem var frekar súrt. Svo fór ég líka í internal medicine á miðvikudaginn sem var rosa gaman. Við fengum að klæða okkur upp eins og læknar og taka sögu af sjúkling. Þetta virðist allt vera að koma bara... búin að kaupa mér hlustunarpípu og blóðþrýstingsmæli og allt... sko bara alveg að verða læknir:D eða eitthvað

Annars bara allt gott að frétta af mér líður bara ágætlega hérna á símony með gunnu og er búin að koma mér ágætlega fyrir.

Ég er komin með nýtt skype :drifa12345 og nýtt msn: tordfro1@hotmail.com

ég er líka komin með netið heim svo núna ætti aðvera soldið auveldara að ná í mig!

Kv. Drífulingur


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 17:38:08 / tordfro

Bara svona ef þið þurfið að ná í mig.....

sími: +36706308169

e-mail: tordfro@simnet.is

Kv. Drífulingur


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2